Áherslusvið í útflutningi
Áherslusvið í útflutningi
Á árinu 2023 starfaði Íslandsstofa innan sex áherslugreina í útflutningi. Mikil fjölbreytni og umsvif einkenndu þennan tíma og öflugt markaðsstarf var unnið.
Orka og grænar lausnir
Verkefni ársins 2023 á sviði orku og grænna lausna voru margvísleg. Grænar lausnir og sér í lagi sjálfbærar grænar lausnir voru kynntar víða undir merkjum Green by Iceland. Markmiðið var að auka vitund um sjálfbæra nýtingu auðlinda á Íslandi og kynna íslenskar grænar lausnir á erlendum mörkuðum. Alls tóku 74 fyrirtæki þátt í viðburðum Green by Iceland erlendis á árinu.
Hugvit, nýsköpun og tækni
Íslandsstofa vinnur áfram að því markmiði að hugvitsdrifnar útflutningsgreinar verði fjórða stoðin í íslensku efnahagslífi og sú mikilvægasta. Tækifæri til vaxtar byggjast á hugviti og mannauði frekar en náttúruauðlindum. Því er mikilvægt að auka vitund á okkar lykilmörkuðum um nýsköpun og viðskiptaumhverfi á Íslandi.
Listir og skapandi greinar
Verkefni ársins 2023 voru unnin í góðu samstarfi við miðstöðvar skapandi greina, sendiráð Íslands erlendis og þau ráðuneyti sem verkefnið fellur undir. Skapandi Ísland kemur að fjölmörgum verkefnum sem snúa að þátttöku Íslands í alþjóðlegum hátíðum og kaupstefnum sem skila verðmætum tengslum og viðskiptum fyrir listir og skapandi greinar.
Ferðaþjónusta
Uppbygging og viðhald viðskiptatengsla skipa veigamikinn sess í ferðaþjónustu og mikill áhugi var á þátttöku í vinnustofum og sýningum á vegum Íslandsstofu á erlendum mörkuðum á árinu. Skipulögð var þátttaka íslenskra fyrirtækja í 35 vinnustofum og sýningum þar sem yfir 400 fyrirtæki táku þátt í heildina.
Sjávarútvegur
Á árinu 2023 var lögð áhersla á að ná til erlenda ferðamanna á Íslandi og hvetja þá til að snæða fisk á meðan á dvöl þeirra stóð með herferðinni „Icelandic Nature – It Goes Great with Fish“. Tóku yfir 100 veitingastaðir tóku þátt í verkefninu. Þá hefur samstarf við kokkaskóla í Suður-Evrópu fest sig í sessi undir merkjum Bacalao de Islandia en að þessu sinni tóku um 400 kokkanemar þátt og reiddu fram dýrindis rétti úr íslenskum saltfiski.
Matvæli og náttúruafurðir
Íslandsstofa kom að skipulagningu ýmissa viðburða hér heima, m.a. kynningarfundi um þróun í framleiðslu þess sem kalla mætti framtíðarmatvæli og samtali fyrirtækja um frekara samstarf á sviði sölu og markaðssetningar fæðubótarefna og húðvara. Umfangsmestu aðgerðir erlendis á árinu tengdust stórum og krefjandi mörkuðum í vestri og austri.