26. apríl 2023

Matvælaráðherra opnar saltfiskveislu í Barcelona  

Ljósmynd

Á hátíðnni munu 25 veitingastaðir og 10 matarmarkaðir í Barcelona bjóða upp á sína útgáfu af saltfiskbollum úr íslenskum fiski frá 26 apríl til 12 maí.

Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra flutti ávarp við opnun matarhátíðarinnar Ruta de Bunyols de Bacallá (Á saltfiskbolluslóðum) í Barcelona í dag. Hátíðin fer fram samhliða Seafood Expo Global, stærstu sjávarútvegssýningu heims.

Alþjóðlega sjávarútvegs- og sjávarútvegstæknisýningin Seafood Expo og Seafood Processing Global fer fram dagana 25.-27. apríl í Barcelona. Rúmlega 40 íslensk fyrirtæki eru með bása á sýningunni þetta árið. Sýningin er sú stærsta sinnar tegundar í heiminum og sækja hana um 30 þúsund manns frá u.þ.b. 150 löndum. Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra heimsótti sýninguna á opnunardaginn ásamt Unni Orradóttur Ramette, sendiherra Íslands á Spáni. Þær kynntu sér starfsemi sýnenda á svæðinu og áttu góðar samræður við fulltrúa íslensku fyrirtækjanna.  

rich text image

Við formlega opnun hátíðarinnar í dag á hinum þekkta matarmarkaði La Boqueria þar sem Svandís Svavarsdóttir, matvælaráðherra flutti ávarp.

Ruta de Bunyols de Bacallá er samstarf markaðsverkefnisins Bacalao de Islandia, Gremi de Bacallaners de Cataluña (félag saltfisksölumanna í Katalóníu), Olis Bargalló (Katalónskur framleiðandi ólífuolíu) og Mercats de Barcelona (matarmarkaðir Barcelonaborgar). Á hátíðnni munu 25 veitingastaðir og 10 matarmarkaðir í Barcelona bjóða upp á sína útgáfu af Bunyols de bacallá (saltfiskbollur) úr íslenskum fiski frá 26 apríl til 12 maí. Rétturinn er vinsæll skyndibiti víða í Katalóníu og þekkja hann allir Barcelonabúar, jafnt ungir sem aldnir. Þá verður einnig boðið upp á vinnustofur fyrir börn á matarmörkuðum þar sem þau geta lært að elda Bunyols de Bacallá, að sjálfsögðu úr íslenskum fiski.

Formleg opnun hátíðarinnar fór fram í dag á hinum þekkta matarmarkaði La Boqueria í miðborg Barcelona og flutti Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra ávarp við það tækifæri fyrir blaðamenn og aðra gesti. Að opnun lokinni hélt ráðherra ásamt föruneyti til hádegisverðar á Mercat Ninot, þar sem fleiri þátttakendur í La Ruta de Bunyols de Bacallá er að finna. Nánari upplýsingar um Ruta de Bunyols de Bacallá má nágast á vef verkefnisins, larutadelsbunyols.cat.

Íslandsstofa skipuleggur þátttöku íslensku fyrirtækjanna á Seafood Expo Global ásamt því að reka markaðsverkefnið Bacalao de Islandia, sem starfrækt hefur verið frá því 2013.   

Íslandsstofa - Útflutningsaðstoð, landkynning, fjárfestingar

Sjá allar fréttir