sjávarútvegur bakgrunnur

Útflutningsgreinar

Sjávar­út­vegur og matvæli

Sjávarútvegur og matvæli

Aukum verðmæti íslenskra sjávarafurða og matvæla með markaðsstarfi á grundvelli uppruna, sjálfbærni og nýsköpunar.

sjávarútvegur forgrunnur

Sjávarútvegur

Íslenskur sjávarútvegur hefur lengst af verið okkar öflugasta útflutningsgrein og máttarstólpi í gjaldeyrisöflun þjóðarinnar. Vexti greinarinnar eru þó takmörk sett frá náttúrunnar hendi og því er nauðsynlegt að auka verðmæti íslenskra sjávarafurða með samræmdu markaðsstarfi á grundvelli uppruna, sjálfbærni og nýsköpunar.

Íslandsstofa stendur fyrir margskonar markaðs- og kynningarstarfi á íslenskum sjávarafurðum til að auka vitund um Ísland sem upprunaland og stuðla að jákvæðni til íslenskra sjávarafurða. Þá kynnum við Ísland sem tilvalinn stað til að eiga viðskipti með sjávarútvegstækni – hvort sem um ræðir lausnir tengdar veiðum, vinnslu eða hámarks nýtingu.

Markaðsstarf

Samstaða í sjávarútvegi

feature image

Seafood from Iceland

Íslensk sjávarútvegsfyrirtæki hafa sameinast undir slagorðinu Seafood from Iceland til að auka útflutningsverðmæti með einu upprunamerki. Verkefninu er einnig ætlað að kynna íslenskan uppruna og auka jákvæðni til íslenskra sjávarafurða.

Sjá meira

Íslenskur uppruni

Matvæli

feature image

Íslensk matvæli

Markmiðið er að efla vitund um Ísland sem upprunaland hreinna og heilnæmra matvæla sem framleidd eru á sjálfbæran hátt.

Rekjanleiki matvæla og tengsl við uppruna þeirra og sögu skapar verðmæti. Hér á landi hafa fyrirtæki á sviði sérhæfðra matvæla og drykkjarvara nýtt sér íslenska upprunann og tengsl við ímynd landsins til aðgreiningar fyrir vörumerki sín á erlendum mörkuðum. Dæmi um þetta eru skyr, íslenskt vatn og drykkjarvörur á borð við bjór og vodka.

Íslenskur sjávarútvegur og matvæli