Ljósmynd

Markaðsverkefni í ferðaþjónustu

Saman í sókn

Saman í sókn

Ísland – saman í sókn er markaðsverkefni fyrir íslenska ferðaþjónustu.

777

Umfjallanir á árinu 2022

21M

Birtingar á samfélagsmiðlum

21.000

Skráningar í OutHorse þjónustuna

Styrkjum ímynd Íslands og áhuga á landi og þjóð

Ísland – saman í sókn er markaðsverkefni fyrir íslenska ferðaþjónustu. Stofnað var til verkefnisins árið 2020 og var það hluti af efnahagsaðgerðum stjórnvalda vegna COVID-19. Ríkissjóður veitti verkefninu 1.500 m.kr. í samræmi við fjáraukalög fyrir árið 2020 sem heimiluðu gerð samnings við Íslandsstofu um samræmt kynningar- og markaðsstarf erlendis á árunum 2020–2021 til að bregðast við neikvæðum áhrifum heimsfaraldurs á íslenska ferðaþjónustu. Samningur um framhald verkefnisins var undirritaður í febrúar 2022 út árið með 550 milljón króna viðbótar framlagi.

rich text image

Markmið og tilgangur

Markmið verkefnisins er að auka eftirspurn eftir íslenskri ferðaþjónustu, styrkja ímynd Íslands sem áfangastaðar og viðhalda samkeppnisstöðu íslenskrar ferðaþjónustu og annarra útflutningsgreina. Verkefnið er unnið í samræmi við framtíðarsýn og leiðarljós íslenskrar ferðaþjónustu til 2030 sem ber yfirskriftina „Leiðandi í sjálfbærri þróun“ og langtímastefnu stjórnvalda og atvinnulífs fyrir íslenskan útflutning. 

Verkefnið á að styrkja ímynd og auka eftirspurn í því skyni að auðvelda fyrirtækjum að auka sölu. Íslandsstofa vinnur markaðsáætlun og greiningar í breiðu samstarfi og viðheldur virkri upplýsingagjöf milli hagaðila.

feature image

Taktu þátt í verkefninu

Áhugasamir geta skráð sig í markaðshóp Saman í sókn til að taka þátt í verkefninu og fá reglulegar upplýsingar um framvinduna og næstu skref í markaðsaðgerðum fyrir áfangastaðinn Ísland.

Skráðu þig á póstlistann

Skipulag og hagaðilar

Yfirstjórn verkefnis er í höndum stýrihóps sem skipaður er þremur fulltrúum ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra og tveimur fulltrúum Samtaka ferðaþjónustunnar. Stýrihópur verkefnis ber ábyrgð á stefnumótun og markmiðum verkefnisins og meiriháttar ákvörðunum. ​ 

Í stýrihóp verkefnisins sitja þrír aðilar sem tilnefndir eru af ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, fimm aðilar sem tilnefndir eru af Samtökum ferðaþjónustunnar og tveir fulltrúar sveitarstjórnarstigsins, annar tilnefndur af Reykjavíkurborg og hinn af markaðsstofum landshlutanna. Formaður verkefnisstjórnar er einn af fulltrúum ráðherra. Íslandsstofa hefur umsjón með framkvæmd markaðsverkefnisins og ber ábyrgð á að kalla saman fundi verkefnastjórnar með reglulegu millibili.  

Íslandsstofa hefur umsjón með framkvæmd markaðsverkefnisins og ber ábyrgð á að kalla saman fundi verkefnastjórnar með reglulegu millibili. 

Ísland - Saman í sókn