21. mars 2023

Viltu koma með á SLUSH í Helsinki?

Ljósmynd

Metþátttaka var frá Íslandi á síðasta ári og mættu fulltrúar 65 sprotafyrirtækja og fjárfesta á ráðstefnuna.

Íslandsstofa stendur fyrir sendinefnd á tækni- og sportaráðstefnuna SLUSH í Helsinki dagana 29. nóvember til 1. desember 2023, í samstarfi við sendiráð Íslands í Finnlandi.

Á SLUSH, sem er stærsti viðburður sinnar tegundar í Evrópu, ræður sköpunarkraftur og frumleg hugsun ríkjum og er þetta kjörinn vettvangur fyrir frumkvöðla til að sækja innblástur og kynnast nýjungum í tækniheiminum.

Áhugasöm fyrirtæki, fjárfestar og fólk úr stuðningsumhverfi nýsköpunar á Íslandi er hvatt til að slást með í för. Líkt og síðustu ár verður gerð upplýsingasíða um þátttakendur sem notuð er fyrir fjölmiðla og samfélagsmiðlateymi Íslandsstofu, auk þess sem henni er miðlað til fjárfesta sem sækja ráðstefnuna.

Athygli er vakin á því að takmarkaður fjöldi miða er í boði og því borgar sig að bregðast við sem fyrst. Þau sem kaupa sér miða eftir öðrum leiðum geta samt sem áður skráð sig í sendinefndina og tryggt að fyrirtæki sitt verði sýnilegt í kynningarefni Íslandsstofu.

Nánari upplýsingar veitir Jarþrúður Ásmundsdóttir, jarthrudur@islandsstofa.is

SKRÁNING Á SLUSH

Íslandsstofa - Útflutningsaðstoð, landkynning, fjárfestingar

Sjá allar fréttir