Markaðsupplýsingar
Gagnabankar
Gagnabankar
Íslandsstofa hefur aðgang að gagnabönkum þar sem er að finna margs konar markaðsupplýsingar, meðal annars um neytendavörur, smásölu, markhópa og neytendahegðun auk upplýsinga um einstök fyrirtæki og viðskiptaumhverfi. Þar er einnig að finna ýmsar tæknilegar upplýsingar s.s um tolla, reglur og skjöl sem krafist er við útflutning til meira en 180 landa.
Starfsfólk Íslandsstofu nýtir þessa gagnabanka við úrvinnslu fyrirspurna en fyrirtækjum og háskólanemum býðst einnig að koma á skrifstofu Íslandsstofu til sækja sér efni í gagnagrunnana í tengslum við markaðsrannsóknir. Í flestum tilvikum er aðgangur að efninu veittur án endurgjalds.
Hægt er að fá aðgang að eftirtöldum gagnabönkum:
EUROMONITOR
Upplýsingar um stærð markaða, neyslumynstur, helstu fyrirtæki og vörumerki í löndum um víða veröld, með áherslu á neysluvörur. Ítarlegar greiningar á neytendum og neytendahegðun ásamt landaskýrslum sem innihalda helstu efnahagslegu og lýðfræðilegu stærðir. Ýmsar greinar og upplýsingar sem varða einstök málefni eða vörur.
KOMPASS
Upplýsingar um fyrirtæki víða um heim, t.d. aðsetur, stjórnendur, veltu, starfsmannafjölda, vöru/þjónustu og lönd sem fyrirtækið á í viðskiptum við. Leitað er eftir nafni fyrirtækis, vöruheiti eða atvinnugreinaflokkun og hægt að takmarka leit við t.d. ákveðið landsvæði eða stærð fyrirtækis.
MARKETLINE
Upplýsingar um stærstu fyrirtækin á markaðnum. Fjármálaupplýsingar og greining á mörkuðum (Fimm krafta líkan M. Porters) út frá samkeppni, staðkvæmdarvörum og möguleikum á að komast inn á markaði.
PROFOUND
Gátt þar sem hægt er að nálgast markaðsrannsóknir um 200 aðila. Íslandsstofa hefur aðgang að leit og þjónustufulltrúa sem getur aðstoðað við leit. Notendur greiða fyrir efni sem sótt er í grunninn. Í flestum tilvikum er bæði hægt að kaupa heilar skýrslur eða einstaka kafla og töflur.
WORLDTARIFF
Upplýsingar um tolla, skatta og vörugjöld á innfluttum vörum í um 120 löndum.
Hafðu samband og pantaðu tíma
Vilt þú leita í gagnabönkunum?
Þú kemur með eigin tölvu og færð aðgang og aðstöðu á skrifstofu Íslandsstofu. Frekari upplýsingar veitir Aðalheiður Davíðsdóttir, þjónustufulltrúi.