food background

Útflutningsgreinar

Matvæli og náttúru­af­urðir

Matvæli og náttúruafurðir

Eflum vitund um Ísland sem upprunaland hreinna og heilnæmra matvæla og náttúruafurða sem unnar eru með sjálfbærum hætti.

food foreground

166

þúsund íslenskir hestar utan Íslands

20+

Stofnaðilar Samtaka þörungafélaga

7

Földun útflutningsvermætis æðardúnssænga ->

220

m.kr. árið 2022 en var 31 m.kr. árið 2020

Markaðsaðgerðir

Verkefnin á sviði matvæla og náttúruafurða eru margskonar

Íslenskur uppruni

Markmiðið er að efla vitund um Ísland sem upprunaland hreinna og heilnæmra matvæla og náttúruafurða sem unnar eru með sjálfbærum hætti.

Rekjanleiki matvæla og tengsl við uppruna þeirra og sögu skapar verðmæti. Hér á landi hafa fyrirtæki á sviði sérhæfðra matvæla og drykkjarvara nýtt sér íslenska upprunann og tengsl við ímynd landsins til aðgreiningar fyrir vörumerki sín á erlendum mörkuðum. Dæmi um þetta eru skyr, íslenskt vatn og drykkjarvörur á borð við bjór og vodka. Þá tengja framleiðendur húð- og næringarvara úr íslenskum jurtum, steinefnum og smáþörungum afurðir sínar við hreinleika íslenskrar náttúru.

Þessi áhersla spannar allt frá vöruþróun, framleiðslu og sölu á hreinum náttúru- og landbúnaðarafurðum sem neytt er sem næst uppruna þeirra, yfir í hátækniframleiðslu á lífvirkum efnum og próteini úr smáþörungum, eða mörkun fyrir íslenskar drykkjarvörur og húðvörur á alþjóðlegum mörkuðum.

feature image

Horses of Iceland

Horses of Iceland er markaðsverkefni um íslenska hestinn sem ýtt var úr vör árið 2015 með aðkomu helstu samtaka og hagsmunaaðila í greininni, Íslandsstofu og stjórnvalda. Íslandsstofa er framkvæmdaraðili að verkefninu sem hefur nú verið framlengt út árið 2024.

Lesa meira

Viltu vita meira?

Matvæli og náttúruafurðir

Kynntu þér verkefnin okkar á sviði matvæla og náttúruafurða.

Erna Björnsdóttir

Fagstjóri matvæla og náttúruafurða

erna@islandsstofa.is

Matvæli og náttúruafurðir