![orka bakgrunnur](https://images.prismic.io/islandsstofa/d366b4a8-7b77-406a-8198-81cdb3e45615_orka_bg.png?ixlib=gatsbyFP&auto=compress%2Cformat&fit=max&w=3154&h=1474)
Útflutningsgreinar
Orka og grænar lausnir
Orka og grænar lausnir
Tökum forystu meðal þjóða í grænum lausnum og sjálfbærri nýtingu auðlinda.
9%
árlegur vöxtur í gagnaveraiðnaði
+100
ma.kr. erlend fjárfesting árið 2021
7
sæti sem leiðtogi í sjálfbærni
1
sæti er stefnan á heimsvísu
Með sjálfbærni að leiðarljósi
Ísland er auðugt af endurnýjanlegum orkuauðlindum og gríðarleg þekkingarsköpun á sviði orku og grænna lausna hefur skapað íslenskum fyrirtækjum mikla sérstöðu á eftirsóttum vettvangi. Þekking og reynsla íslenskra fyrirtækja á sviði orkunýtingar hefur jafnframt ýtt undir spennandi nýsköpun á sviði grænna lausna sem nýst geta víða um heim.
Með markvissum aðgerðum í þágu minni losunar og aukinni kolefnisbindingu stefnir Ísland að því að verða kolefnishlutlaust árið 2040 og taka sér leiðandi stöðu á sviði loftslagsmála. Þessi staða getur skapað mikil tækifæri fyrir útflutning íslenskar þekkingar og grænna lausna.
Ísland í fararbroddi
Ísland er þegar tengt sjálfbærni í hugum fólks víða um heim. Efnahagslega og samfélagslega mikilvæg starfsemi á borð við orkugeirann og sjávarútveginn leggur mikla áherslu á sjálfbærni og ábyrga nýtingu auðlinda.
Orka úr endurnýjanlegum auðlindum er vaxandi verðmæti sem hefur m.a. laðað hingað til lands nýja erlenda fjárfestingu auk þess sem þekking og reynsla á þessu sviði skapar útflutningsverðmæti.
Eftirspurn eftir grænum lausnum eykst hratt á flestum sviðum og íslensk fyrirtæki hafa náð eftirtektarverðum árangri, t.d. í tækni til orkusparnaðar og fullnýtingar hráefna.
Markaðsaðgerðir
Aukum vitund um íslenskar grænar lausnir
![feature image](https://images.prismic.io/islandsstofa/52de8536-7b11-45e3-b666-16dd9b66b165_Datacenters.jpg?ixlib=gatsbyFP&auto=compress%2Cformat&fit=max&w=2400&h=1710)
Gagnaver
Um nokkurra ára skeið hefur Ísland verið kynnt sem einn besti staðsetningarkostur heims fyrir gagnaver, byggt á úttektar- og greiningarvinnu innlendra sem erlendra ráðgjafastofa.
Verðmætir viðskiptavinir alþjóðlegra gagnavera leggja áherslu á endurnýjanlegan uppruna orkunnar sem knýr og kælir ofurtölvur þeirra.
Viltu vita meira?
Orka og grænar lausnir
Kynntu þér verkefnin á sviði orku og grænna lausna.