Markaðssókn
Sýningar
Sýningar
Íslandsstofa skipuleggur árlega þátttöku íslenskra fyrirtækja í sýningum og viðskiptasendinefndum víða um heim.
Ávinningur íslenskra fyrirtækja af sameiginlegri þátttöku í sýningum undir hatti Íslandsstofu er mikill. Öll stefna þau að sama marki - að kynna vörur sínar og þjónustu, efla ímynd fyrirtækisins, treysta viðskiptatengsl og stofna til nýrra, ásamt því að kynnast stefnum og straumum í atvinnugreininni.
Með ráðgjöf, fræðslu og upplýsingamiðlun tryggir starfsfólk Íslandsstofu markvissa, fagmannlega og árangursríka framgöngu íslenskra fyrirtækja á sýningum erlendis.
Íslandsstofa skipuleggur einnig viðskiptasendinefndir á erlenda markaði. Þar eru settar upp vinnustofur og íslenskum þátttakendunum gefst kostur á að hitta erlenda ferðaheildsala og eiga með þeim fundi og kynna þjónustu sína.
Ferðasýningar og vinnustofur árið 2024
* Birt með fyrirvara um breytingar
Áætlun - ferðasýningar og vinnustofur árið 2024
Viltu vita meira?
Ferðasýningar og vinnustofur
Kynntu þér viðburðina.