KYNNINGARFUNDUR Á HÓTEL REYKJAVÍK NATURA - 26. SEPTEMBER NK. KL. 9:00

Þriðjudaginn 26. september næstkomandi, kl. 9:00 - 15:30, fer fram á Hótel Reykjavik Natura kynningarfundur um möguleika á samstarfi í uppbyggingu hitaveitna og endurnýjanlegrar orku i Póllandi.

Von er á 30 aðilum frá Póllandi til landsins, þar á meðal frá fjölmörgum pólskum sveitarfélögum og svo fyrirtækjum, og munu þau kynna starfsemi sína, auk þess sem fyrirtæki á Íslandi munu einnig kynna sína starfsemi. Fundurinn verður með svipuðu sniði og fyrri fundur sem var haldinn í september 2022, en nú verða aðrir aðilar frá Póllandi.

Fundurinn er liður í uppbyggingar- og þjálfunarverkefninu KeyGeothermal, á jarðhita í Póllandi, sem unnið er að í samstarfi á milli Orkustofnunar á Íslandi og IGSMiE PAN í Póllandi, á vegum Uppbyggingarsjóðs EES. Verkefninu var formlega hleypt af stokkunum í febrúar 2021 og stendur til apríl 2024.

Þátttaka tilkynnist til Orkustofnunar hér.

NÁNAR UM VIÐBURÐINN

Aukin hagkvæmni hitaveitna, orkuöryggi og dregið úr losun koltvísýrings

Markmið verkefnisins er að auka þekkingu helstu hagsmunaaðila í Póllandi á sviði nýtingar jarðhita, með áherslu á húshitun með endurnýjanlegum orkugjöfum, sem eykur hagkvæmni og orkuöryggi og minnkar losun koltvísýrings sem er mikilvægt í baráttunni við loftslagsbreytingar.

 Tilgangur heimsóknarinnar frá Póllandi er einnig að efla tengsl á milli landanna á sviði jarðhita með kynningum, heimsókn til hitaveitna, afla upplýsinga og auka þekkingu á sviði jarðhita. Tækifærið er nýtt til að efla samstarfsmöguleika á milli Póllands og Íslands á sviði jarðhita til að auka notkun og nýtingu jarðhita, auka orkuöryggi og draga úr mengun. Helstu áherslur verkefnisins eru að halda kynningar og þjálfunarverkefni í Póllandi, heimsóknir til Íslands og úttekt sérfræðinga á mögulegri uppbyggingu hitaveitna á völdum stöðum í Póllandi.

Sjá meira