rich text image

ThisisEngineering RAEng

TÆKNIÞRÓUNARSJÓÐUR ER OPINN

Opnað hefur verið fyrir umsóknir í Tækniþróunarsjóð og er umsóknarfrestur til 15. mars 2023.

Sjóðurinn veitir styrki allt að fjárhæð 70 milljónir til tækni og nýsköpunarverkefna. Sjóðurinn veitir styrki til verkefna í hvaða landi sem er.

Hlutverk sjóðsins er að styðja þróunarstarf og rannsóknir á sviði tækniþróunar sem miða að nýsköpun í íslensku atvinnulífi. Sjóðurinn býður upp á fjóra flokka fyrirtækjastyrkja; Sprota, Vöxt, Sprett og Markaðsstyrk auk þess sem ávallt er opið fyrir umsóknir um Fræ og Þróunarfræ-styrkina. Hver styrkur er sniðinn að mismunandi þróunarstigi verkefna og stærð fyrirtækja.

Tengiliður sjóðsins er Lýður Skúli Erlendsson, sérfræðingur hjá Rannís. Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu sjóðsins hjá Rannís.

Sjá meira